Úlfljótur, tímarit laganema, hefur verið gefið út lengst allra fræðirita við Háskóla Íslands. Fyrsta tölublað þess leit dagsins ljós í lok febrúarmánaðar árið 1947. Frá þeim tíma hefur tímaritið verið gefið út á hverju ári, að undanskildu árinu 1951, og orðið efnismeira með hverju árinu sem líður.
Í Úlfljóti er að finna vandaðar greinar um íslenska sem og alþjóðlega lögfræði auk þess sem þar er að finna umfjöllun um það sem er efst á baugi í lögfræði hverju sinni. Þar eru m.a. reifaðir nýjustu dómar Hæstaréttar, fjallað um ný fræðirit á sviði lögfræði og greint frá helstu tíðindum sem berast frá Alþingi svo fátt eitt sé nefnt. Í tímaritinu eru og fluttar fregnir af hinu stranga og áhugaverða laganámi sem og hinu viðburðaríka starfi félagsstarfi Orators og Úlfljóts. Flestir höfundar eru lögfræðingar eða laganemar en auk þeirra hafa fjölmargir aðrir, sem láta sig lögvísindi varða, ritað greinar í Úlfljót.
Ritrýninefnd Úlfljóts er svo skipuð:
Hrefna Dögg Gunnarsdóttir, fræðilegur ritstjóri vef- og prentritsins
Ásgerður Ragnarsdóttir
Benedikt Bogason
Kristín Benediktsdóttir
Dr. M. Elvira Méndez Pinedo
Ritnefnd 78. árgangs Úlfljóts er svo skipuð:
Elísa Aðalheiður Eyvindsdóttir, ritstýra
Andrea Pétursdóttir
Birkir Snær Brynleifsson
Friðjón Guðjohnsen
Salka Sigmarsdóttir
Tanja Kristín Sindradóttir
Ritnefnd 79. árgangs Úlfljóts er svo skipuð:
Salka Sigmarsdóttir, ritstýra
Emilíanna Rut Mikaelsdóttir
Friðjón Guðjohnsen
Helga Harðardóttir
Kjartan Leifur Sigurðsson
Kolka Rist
Ritstýru 78. árgangs Úlfljóts má nálgast í gegnum netfangið eae27@hi.is. Ritstýru 79. árgangs Úlfljóts má nálgast í gegnum netfangið sas125@hi.is.