Almennt

Úlfljótur, tímarit laganema, hefur verið gefið út lengst allra fræðirita við Háskóla Íslands. Fyrsta tölublað þess leit dagsins ljós í lok febrúarmánaðar árið 1947. Frá þeim tíma hefur tímaritið verið gefið út á hverju ári, að undanskildu árinu 1951, og orðið efnismeira með hverju árinu sem líður.

Í Úlfljóti er að finna vandaðar greinar um íslenska sem og alþjóðlega lögfræði auk þess sem þar er að finna umfjöllun um það sem er efst á baugi í lögfræði hverju sinni. Þar eru m.a. reifaðir nýjustu dómar Hæstaréttar, fjallað um ný fræðirit á sviði lögfræði og greint frá helstu tíðindum sem berast frá Alþingi svo fátt eitt sé nefnt. Í tímaritinu eru og fluttar fregnir af hinu stranga og áhugaverða laganámi sem og hinu viðburðaríka starfi félagsstarfi Orators og Úlfljóts. Flestir höfundar eru lögfræðingar eða laganemar en auk þeirra hafa fjölmargir aðrir, sem láta sig lögvísindi varða, ritað greinar í Úlfljót.

Ritrýninefnd Úlfljóts er svo skipuð:
Dr. Aðalheiður Jóhannsdóttir, fræðilegur ritstjóri prentritsins
Víðir Smári Petersen, fræðilegur ritstjóri vefritsins
Ásgerður Ragnarsdóttir
Benedikt Bogason
Kristín Benediktsdóttir
Dr. M. Elvira Méndez Pinedo

Ritnefnd 76. árgangs Úlfljóts er svo skipuð:
Daníel Njarðarson, ritstjóri
Bryndís Kristjánsdóttir
Inga Lilja Ásgeirsdóttir
Marínó Eggertsson
Steingrímur Daði Kristjánsson
Ylfa Helgadóttir

Ritstjóra má nálgast í gegnum netfangið den1 hjá hi.is