Norræna málflutningskeppnin

Ritstjórn Úlfljóts skrifar

Fulltrúar nokkurra helstu lagadeilda við háskóla á Norðurlöndunum komu nýverið saman á Íslandi til þátttöku í Norrænu málflutningskeppninni, sem haldin er árlega. Að þessu sinni var Ísland gestgjafi keppninnar og tóku alls ellefu lið þátt, frá Svíþjóð, Danmörku, Noregi, Finnlandi og Íslandi.

Fyrir hönd Íslands keppti lið lagadeildar Háskóla Íslands, Club Lögberg. Liðið skipuðu Draupnir Dan Baldvinsson, Guðrún Sigríður Arnalds, Helga Margrét Ólafsdóttir, Jens Ingi Andrésson og Stefán Hermannsson.

Dagskráin hófst með glæsilegri móttöku í boði Landslaga fimmtudaginn 4. júní þar sem keppendur voru boðnir velkomnir til landsins með ræðuhöldum og tónlistaratriðum. Daginn eftir var farið í skoðunarferð um Þingvelli auk þess sem Alþingi hélt móttöku fyrir hópinn síðar um daginn í Smiðju, nýrri skrifstofubyggingu Alþingis. 

Riðlakeppni og undanúrslit voru háð í Héraðsdómi Reykjavíkur á laugardeginum en um kvöldið var hátíðarkvöldverður, svokallaður bankett, þar sem borðhald, skemmtiatriði og dansleikur stóðu yfir fram á nótt. Úrslitin voru síðan haldin í Hæstarétti Íslands á sunnudeginum en lið lagadeildar Oslóarháskóla, Club Schjødt, bar þar sigur úr býtum gegn liði Kaupmannahafnarháskóla, Club Lannung.

Í keppninni reynir á hæfni þátttakenda til að flytja mál um ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu og skiptir hvert lið sér í sókn og vörn. Málflutningur fer fram á sænsku, dönsku eða norsku og velja keppendur sjálfir á hvaða tungumáli þeir flytja málið. Það getur skapað ákveðna áskorun fyrir íslenska og finnska þátttakendur sem hafa ekki eigið móðurmál meðal tungumála keppninnar. Club Lögberg lét það þó heldur betur ekki aftra sér, komst áfram í undanúrslit auk þess sem Helga Margrét Ólafsdóttir var valin besti málflytjandi síns riðils.

Úlfljótur óskar liði lagadeildar Háskóla Íslands innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.