Ritstjórn Úlfljóts skrifar

Þann 21. október síðastliðinn var árlegt hátíðarmálþing Úlfljóts haldið sem bar yfirskriftina „Síðasta veiðiferðin? Hvalveiðibann, lagaumgjörðin og atvinnufrelsisákvæði stjórnarskrárinnar“.
Bann á hvalveiðum er málefni sem hefur lengi verið í brennidepli. Umræðan er hins vegar sérstaklega viðeigandi á þessari stundu, í ljósi þess að frumvarp til laga um breytingu á lögum um hvalveiðar er komið á þingmálaskrá fyrir næsta vor. Með frumvarpinu verður lögð til heildarendurskoðun á lögum um hvalveiðar og sérstaklega verður þar litið til sjónarmiða um bann við hvalveiðum til frambúðar og þeirra stjórnskipulegu álitaefna sem huga þarf að í því sambandi, meðal annars með tilliti til atvinnufrelsis og eignarréttar.
Úlfljótur bauð þremur sérfróðum framsögumönnum til að fjalla um þetta málefni og varpa fram þeim sjónarmiðum og lagarökum sem skipta mestu máli er það varðar.
Framsögumenn málþingsins voru Snjólaug Árnadóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, Katrín Oddsdóttir, lögmaður, og Jón Gunnarsson, alþingismaður og f.v. dómsmálaráðherra.
Fundarstjóri var Helga Harðardóttir, ritstjóri 80. árgangs Úlfljóts.
Úlfljótur þakkar framsögumönnum kærlega fyrir áhugaverð og fróðleg erindi og áhorfendum fyrir góða mætingu og líflegar umræður.