Hjúskaparslit – bætt réttarstaða þolenda ofbeldis*

Eftir Hrefnu Friðriksdóttur, prófessor við lagadeild HÍ.

*Grein þessi hefur verið ritrýnd og staðist þær fræðilegu kröfur sem gerðar eru samkvæmt reglum Vefrits Úlfljóts.

Efnisyfirlit

Ágrip

Á undanförnum árum hefur verið lögð vaxandi áhersla á að styrkja stöðu þolenda heimilisofbeldis. Við setningu laga nr. 71/2022, um breytingu á hjúskaparlögum nr. 31/1993, var gert ráð fyrir endurskoðun laganna innan tveggja ára og þann 2. júní 2026 kynnti dómsmálaráðherra til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög sifjalaganefndar að frumvarpi til nýrra hjúskaparlaga. Í greininni verða dregin fram þau efnisatriði í frumvarpsdrögunum sem eru helst til þess fallin að bæta stöðu þolenda ofbeldis við slit hjúskapar.

Abstract

In recent years, increasing emphasis has been placed on strengthening the position of victims of domestic violence. When Act No. 71/2022, amending the Marriage Act No. 31/1993, was enacted a review of the law was expected within two years and on June 2, 2026, the Minister of Justice presented the Family Law Committee’s draft bill for a new Marriage Act on the Government’s Consultation Portal. This article will highlight the substantive aspects of the draft bill that are most likely to improve the position of victims of violence in the event of a dissolution of marriage.

1. Inngangur

Á undanförnum árum hefur verið unnið að innleiðingu samnings Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi og hafa sjónir m.a. beinst að ákvæðum hjúskaparlaga. Með lögum nr. 71/2022, um breytingar á hjúskaparlögum nr. 31/1993 (hjskl.) voru stigin ákveðin skref í þá átt að styrkja stöðu þolenda ofbeldis og tryggja rétt þeirra til að slíta hjúskap. Með lögunum fylgdi ákvæði til bráðabirgða um endurskoðun hjúskaparlaga og framkvæmd þeirra innan tveggja ára. Í kjölfarið skipaði þáverandi dómsmálaráðherra sifjalaganefnd til að fara með heildstæðum hætti yfir hjúskapar- og barnalög.

Þann 2. júní 2026 kynnti dómsmálaráðherra til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda drög sifjalaganefndar að frumvarpi til nýrra hjúskaparlaga (hér eftir nefnd frumvarpsdrög).[1] Í drögunum kemur fram með almennum hætti að sifjalaganefnd hafi metið áhrif ofbeldis í tengslum við stofnun hjúskapar, ógildingu, skilnað, framfærslu, fjármál hjóna og fjárskipti.[2]Markmið með þessari grein er að varpa frekara ljósi á frumvarpsdrögin og draga fram hvaða efnisatriði í drögunum eru helst til þess fallin að bæta stöðu þolenda ofbeldis við slit hjúskapar.[3]

2. Drög að frumvarpi til nýrra hjúskaparlaga

Samkvæmt Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna frá 1948 er fjölskyldan í eðli sínu frumeining þjóðfélagsins og ber ríkinu að vernda hana. Friðhelgi fjölskyldunnar, skv. ákvæði 71. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944, sbr. stjórnskipunarlög nr. 97/1995, og 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, felur m.a. í sér rétt til að stofna fjölskyldu og vernd á fjölskyldulífi og fjölskyldutengslum.[4] Með hliðsjón af friðhelgi fjölskyldunnar hafa hjón þótt eiga ríkari rétt til hjúskaparstofnunar en til að slíta hjúskap. Þetta kallast þó á við friðhelgi einkalífs, sem verndað er í sömu ákvæðum, og felur m.a. í sér rétt hvers manns til að ráða yfir lífi sínu og líkama og njóta friðar um lífshætti sína, einkahagi og samskipti við aðra. Í því felst m.a. jákvæð skylda ríkisins til að gera viðeigandi ráðstafanir í því skyni að tryggja vernd gegn ofbeldi og þar með ákveðinn rétt til að losna úr hjúskap. 

Þann 9. maí 2018 fullgilti Ísland samning Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi, svokallaðan Istanbúl samning, sem kveður á um ýmis réttindi þolenda og skyldur opinberra aðila til að vernda og aðstoða þolendur kynbundins ofbeldis.[5] Haustið 2021 gáfu íslensk stjórnvöld út skýrslu um stöðu innleiðingar Istanbúl samningsins hér á landi.[6] GREVIO, eftirlitsnefnd með innleiðingu Istanbúl samningsins, birti svo fyrstu matsskýrslu sína fyrir Ísland haustið 2022 þar sem settar voru fram ábendingar um atriði sem talin voru þarfnast aðgerða íslenskra stjórnvalda.[7] Í kjölfarið var skipaður starfshópur sem skilaði skýrslu í mars 2023.[8] Starfshópurinn fékk ítrekaðar ábendingar um að skilnaður geti verið þungt ferli fyrir þolendur kynbundins ofbeldis. Að mati starfshópsins er brýnt að endurskoða ákvæði hjúskaparlaga, m.a. með tilliti til eftirfarandi atriða: 

  • Koma í veg fyrir að hægt sé að draga skilnaðarferli á langinn með því að semja ekki um fjárskipti. Um leið er þó talið óæskilegt að heimila skilnað án fjárskipta þar sem fjárhagslegt ofbeldi og stjórnun geti þá haldið áfram í tengslum við skipti eftir útgáfu skilnaðarleyfis. 
  • Heimila að greiða skiptatryggingu vegna opinberra skipta úr ríkissjóði í skilnaðarmálum þar sem uppi eru ásakanir um ofbeldi. 
  • Tryggja rétt annars hjóna til beins lögskilnaðar.
  • Fella brott ákvæði 42. gr. hjúskaparlaga um sættir. 
  • Huga að túlkaþjónustu í skilnaðar- og fjölskyldumálum.
  • Gera útgáfu könnunarvottorðs að gildisskilyrði hjúskapar.
  • Tryggja viðbrögð vegna þvingaðra hjónabanda og rýmka heimildir til ógildingar hjúskapar. 

Með lögum nr. 71/2022, um breytingar á hjúskaparlögum nr. 31/1993, var réttur þolenda ofbeldis styrktur en í athugasemdum sem fylgdu frumvarpi til breytingarlaganna var vikið að nauðsyn frekari breytinga, m.a. á málsmeðferð skilnaðarmála.[9] Samhliða frumvarpi til breytingarlaganna var lögð fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar um hraðari málsmeðferð og bætta réttarstöðu þolenda heimilisofbeldis við hjúskaparslit. Lagt var til m.a. að fela ráðherra að taka hjúskaparlög til endurskoðunar með það að markmiði að stuðla að hraðari málsmeðferð við hjónaskilnaði, ekki síst til að bæta stöðu þolenda heimilisofbeldis.[10] Tillagan náði ekki fram að ganga en meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar tók efnislega undir tillögurnar í nefndaráliti við afgreiðslu frumvarpsins sem varð að breytingarlögum nr. 71/2022. Meiri hluti nefndarinnar taldi m.a. þörf á því að rýmka ákvæði um skilyrði gjafsóknar svo meðferð skilnaðarmála, fjárskipta eða forsjármála yrði þolendum heimilisofbeldis ekki jafn íþyngjandi og að gerð yrði greining á mannafla- og fjármagnsþörf sýslumannsembætta, til að tryggja í senn vandaða og skilvirka málsmeðferð skilnaðarmála og alls þess sem þeim tengist. Talið var mikilvægt að framangreind endurskoðun færi fram sem fyrst.[11]

Þann 13. júlí 2023 skipaði þáverandi dómsmálaráðherra sifjalaganefnd vegna verkefna á sviði barnaréttar og hjúskaparréttar. Var nefndinni falið að skoða framkomnar ábendingar um að styrkja stöðu þolenda ofbeldis og auk þess að yfirfara hjúskaparlög í heild sinni og leggja mat á hvort ástæða væri til að skoða fleiri þætti og eftir atvikum móta rökstuddar tillögur að breytingum sem nefndin teldi æskilegar. Drög sifjalaganefndar til nýrra hjúskaparlaga voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda þann 2. júní 2026.[12]

Með nýjum heildarlögum er stefnt að skýrari uppbyggingu hjúskaparlaga og markvissara og nútímalegra orðalagi.[13] Í frumvarpsdrögunum er byggt á samskonar undirstöðusjónarmiðum og lagður var grunnur að á upphafsárum tuttugustu aldar, þ.e. jafnrétti, sjálfstæði og samstöðu hjóna. Þá er almennt tekið mið af því að vernda þann sem stendur lakar að vígi, fyrst og fremst með reglum um frávik sem beita má til að ná fram réttlátri niðurstöðu með sanngirni að leiðarljósi.[14] Í frumvarpsdrögunum er að finna ýmis nýmæli, m.a. nokkur sem telja má öðrum fremur til þess fallin að styrkja stöðu þolenda ofbeldis. 

3. Slit hjúskapar

3.1 Ógilding

Sums staðar hefur verið horfið frá því að heimila ógildingu hjúskapar og látið nægja að styðjast við skilnaðarskilyrði. Ljóst er að afar sjaldan reynir á þessi ákvæði laganna.[15] Skilyrði ógildingar lýsa þó aðstæðum sem krefjast hjúskaparslita eða þykja til þess fallin að styðja óvírætt við hjúskaparslit, svo sem þegar um er að ræða náin skyldleika hjónaefna eða annað hjóna hefur verið neytt til vígslunnar.[16]

Í frumvarpsdrögunum er lagt til í 25. gr. að halda heimildum til ógildingar hjúskapar, enda þykja þessi ákvæði hafa nokkuð varnaðargildi.[17] Lagt er til að taka betur utan um nauðung með sérstökum 3. tölul. 1. mgr. 25. gr. þar sem gert er ráð fyrir að annað hjóna geti krafist ógildingar hafi það verið blekkt, þvingað eða neytt til vígslunnar. Þá er lagt til að lengja málshöfðunarfresti í þessum tilvikum, sbr. 2. mgr. 25. gr. í frumvarpsdrögunum, þannig að höfða megi mál innan 12 mánaða frá því að nauðung létti eða innan fimm ára frá hjónavígslu.

Í framkvæmd hlýtur ógilding alltaf að vera metin í samhengi við skilnað. Ógilding er þyngri í vöfum að því leyti að krafa verður að styðjast við tiltekin skilyrði og reka verður mál fyrir dómi en á móti kemur að sérregla gildir um fjárskiptin, sbr. 30. gr. hjskl. og 27. gr. í frumvarpsdrögunum. Ef frumvarpsdrögin verða að lögum þá mun annað hjóna eiga skilyrðislausan rétt til lögskilnaðar og sýslumaður veita skilnaðarleyfi, eins og nánar verður fjallað um síðar, en á móti kemur þá að meginreglur laganna gilda um fjárskiptin og annað hjóna þarf að treysta á fráviksreglur laganna til að ná fram sömu niðurstöðu og eiga við um ógildingu.

3.2 Skilnaður

3.2.1 Skilnaðarskilyrði

Með skilnaðarskilyrðum er átt við þau skilyrði sem þarf að uppfylla til að eiga rétt til skilnaðar og hefur þróun skilnaðarskilyrða mótast af sjónarmiðum um samkomulag, vilja, brostnar forsendur eða sök.[18] Almennt fylgja skilnaði ýmsar áskoranir og hefur hann alla jafna fjölþætt persónu-, fjárhags- og samfélagsleg áhrif. Hefur því þótt lögmætt markmið að hvetja til varnfærni og umhugsunar áður en til skilnaðar kemur. Skilnaður hefur lengst af verið tvenns konar, annars vegar skilnaður að borði og sæng sem gefur hjónunum ákveðinn umhugsunarfrest, sbr. 36. gr. hjskl., og hins vegar lögskilnaður sem felur í sér endanleg hjúskaparslit, sbr. 5. gr. hjskl. Réttur til lögskilnaðar er samkvæmt gildandi lögum bundinn við að ákveðinn tími hafi liðið frá skilnaði að borði og sæng eða við aðstæður sem þykja með þeim hætti að maki eigi ekki að þurfa að þola að vera lengur í hjúskap.

Á Norðurlöndum hefur á undanförnum áratugum verið lögð vaxandi áhersla á sjónarmið um samkomulag hjóna eða vilja annars hjóna og samhliða stefnt að því að draga verulega úr vægi sérstakra skilnaðarskilyrða sem byggja á sök.[19] 

Frá setningu fyrstu heildstæðu laganna um stofnun og slit hjúskapar, nr. 39/1921, hafa hjón sem eru sammála átt rétt til skilnaðar að borði og sæng en það var ekki fyrr en við setningu núgildandi laga sem kveðið var á um óskoraðan rétt annars hjóna til skilnaðar að borði og sæng, sbr. 34. gr. hjúskaparlaga. Lengst af hefur gætt mikillar tregðu við því að heimila lögskilnað á grundvelli samkomulags hjóna en með lögum nr. 71/2022 var opnað fyrir þann möguleika að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, sbr. 43. gr. a.  Hvergi á Norðurlöndum hefur verið mælt fyrir um óskoraðan rétt annars hjóna til lögskilnaðar heldur gengið út frá því að uppfylla þurfi tiltekin skilyrði, svo sem skilyrði um hjúskaparbrot skv. 39. gr. eða um ofbeldi skv. 40. gr. hjskl.[20]

Við setningu laga nr. 71/2022 var lagt upp með að rýmka ákvæði 40. gr. hjskl. um rétt til lögskilnaðar vegna ofbeldis og að skýra frekar sönnunarkröfur. Í frumvarpsdrögunum er lagt til að ganga mun lengra og mæla í 28. og 29. gr. fyrir um rétt hjóna saman og rétt hvors um sig til skilnaðar að borði og sæng eða lögskilnaðar án þess að tilgreina þurfi ástæður.[21] Þá er lagt til að fella niður ákvæði gildandi laga um sérstakar lögskilnaðarástæður. Rökin eru fyrst og fremst tvenns konar. Annars vegar er áherslan á hjúskap sem frjálst, ábyrgt samband tveggja sjálfstæðra einstaklinga sem þau séu best til þess fallin að taka ákvarðanir um. Hins vegar er bent á ýmis vandkvæði við að móta réttmæt og eðlileg lögskilnaðarskilyrði sem endurspegli í raun brostinn grundvöll hjúskapar svo og að móta sönnunarkröfur.[22]

3.2.2 Skilnaðarkjör

Með skilnaðarkjörum er átt við þau atriði sem þurfa að vera til lykta leidd eða í skýrum farvegi áður en heimilt er að gefa út leyfi til skilnaðar.[23] Er hér um að ræða úrlausn mála um framfærslueyri, fjárskipti og málefni barna. Ásakanir um ofbeldi er ljóslega eitt af þeim atriðum sem geta gert úrlausn þessara mála flóknari og skilnað erfiðan. Um leið eru niðurstöðurnar með einum eða öðrum hætti undirstaða þess að hjón geti raunverulega lagt grunn að lífi sínu eftir skilnaðinn. Í 35. gr. frumvarpsdraganna er lagt til skýrara ákvæði um skilnaðarkjör en ekki er vikið frá þeirri kröfu að annað hvort þurfi að liggja fyrir samningur hjóna eða sönnun þess að tiltekin ágreiningefni séu komin í tiltekinn farveg. Í frumvarpsdrögunum er þó að finna nokkur atriði sem horfa til einföldunar eða hagræðis.

Eftir samvistarslit í aðdraganda skilnaðar reynir oft á hvort og hvernig hjón uppfylla gagnkvæmar framfærsluskyldur. Í frumvarpsdrögunum er skýrara ákvæði um framfærsluskyldur eftir samvistarslit og í athugasemdum við 37. gr. má finna nánari skýringar á þeim sjónarmiðum sem eiga við.[24] Þá er lagt til nýtt ákvæði í 38. gr. um framfærslueyri eftir skilnað. Er þar m.a. gert ráð fyrir að gagnkvæm framfærsluskylda haldist eftir lögskilnað án undangengnis skilnaðar að borði og sæng en samkvæmt gildandi lögum fellur framfærsluskyldan almennt niður við lögskilnað. Helst þetta nýmæli í hendur við tillögu um óskoraðan rétt til lögskilnaðar og kemur t.d. í veg fyrir að sá sem beitt hefur ofbeldi geti krafist lögskilnaðar gagngert til að losna við framfærsluskyldur.[25] Gert er ráð fyrir að sýslumaður leysi alfarið úr ágreiningi um framfærslu eftir skilnað og tiltekin þau atriði sem líta ber til. Þá er vikið frá þeirri kröfu að úrskurður verði að liggja fyrir áður en skilnaðarleyfi er veitt heldur nægir að krafa sé komin fram., sbr. 1. tölul. 1. mgr. 35. gr. frumvarpsdraganna. Í frumvarpsdrögunum er einnig að finna mikilvægt nýmæli í 41. gr. um að Tryggingastofnun ríkisins hafi milligöngu um greiðslu framfærslueyris sem sýslumaður hefur úrskurðað um. 

Í 2. tölul. 1. mgr. 35. gr. frumvarpsdraganna eru gerðar svipaðar efnislegar kröfur til frágangs fjárskipta og í 2. máls. 1. mgr. 44. gr., sbr. og 4. málsl. 1. mgr. 95. gr. hjskl. Í frumvarpsdrögunum er þó að finna nokkur nýmæli sem ætlað er að liðka fyrir fjárskiptum með einum eða öðrum hætti. 

Í fyrsta lagi er rétt að nefna nýmæli 74. gr.  í frumvarpsdrögunum um heimild maka til að óska upplýsinga með tilteknum hætti um eignir og skuldir og til að krefjast skráningar og verðmats utan opinberra skipta. Samkvæmt gildandi lögum hefur maki engar heimildir til að afla upplýsinga um eignir og skuldir hins hjóna og getur þetta gert hjónum erfitt um vik að meta samningsstöðu sína við gerð fjárskiptasamnings. Ákvæðið er til þess fallið að stuðla að því að fjárskiptasamningur byggi á réttum upplýsingum og að auðvelda hjónum að ljúka fjárskiptum án þess að óska opinberra skipta og þar með draga úr umstangi og kostnaði sem fylgir þeirri leið.[26]

Í öðru lagi má nefna nýmæli 89. og 91. gr. frumvarpsdraganna, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 35. gr., um að skipti verði ekki knúin fram. Áfram er gert ráð fyrir veita megi leyfi til skilnaðar ef fyrir liggur samkomulag milli hjóna um fjárskipti eða opinber skipti hafin vegna fjárslita, sbr. 2. máls. 1. mgr. 44. gr. hjskl. Samkvæmt 4. málsl. 1. mgr. 95. gr. hjskl. getur fjárskiptum einnig lokið með yfirlýsingu beggja hjóna um eignaleysi sem þau staðfesta fyrir sýslumanni eða dómara[27]  og ljóst er að yfirlýsing annars dugar ekki til, sbr. H 172/2006 og H 213/2017. Ef annað hjóna fæst ekki til að standa að yfirlýsingu um eignaleysi verður hitt hjóna því að krefjast opinberra skipta samkvæmt gildandi lögum.

Í frumvarpsdrögunum er lagt til að orðalag um að skipti verði ekki knúin fram komi í stað orðlags um eignaleysi enda nái það betur yfir nokkur ólík tilvik. Þannig verði skipti ekki knúin fram þegar hjón búi við algert séreignafyrirkomulag eða þegar hjón séu sammála um að falla frá öllu tilkalli til eigna hvors annars og geri engar kröfur á hendur hvort öðru vegna fjárskipta.[28] Þá geti verið um að ræða eignaleysi, þ.e. að opinber skipti verði ekki knúin fram þar sem hvorugt hjóna eigi eignir umfram skuldir. Í dómi H 261/2005 var því þannig slegið föstu að opinberum skiptum til fjárslita vegna hjónaskilnaðar verði beitt til að fylgja eftir gagnkvæmu tilkalli til eigna, skv. 103. gr. hjskl., en með hliðsjón af 3. mgr. 109. gr. laga um skipti á dánarbúum o.fl nr. 20/1991 geti opinber skipti ekki farið fram til þess eins að færa frá öðru hjóna yfir á herðar hins skuldir, sem eignir þess fyrrnefnda hrökkva ekki fyrir. Dómaframkvæmd sýnir að vandasamt getur verið að staðfesta eignaleysi.

Í H 765/2017 krafðist M skilnaðar fyrir dómi og lagði fram úrskurð héraðsdóms þar sem synjað hafði verið kröfu M um opinber skipti, einkum á þeim forsendum að ekki væri ljóst hvort M ætti eignir umfram skuldir og ekkert lægi fyrir um eignastöðu K, sem sótti ekki þing. M taldi að í úrskurði um að hafna opinberum skiptum hefði því verið slegið föstu að um eignaleysi væri að ræða og því uppfyllt lagaskilyrði til skilnaðar að borði og sæng skv. 44. gr. hjskl. Í skilnaðarmálinu fullyrti K að til staðar væru eignir umfram skuldir. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um að K hefði tekist að leiða að því líkur að eitthvað væri til skiptanna og var kröfu um skilnað því vísað frá dómi. 

Í L 513/2018 krafðist K lögskilnaðar fyrir dómi og var fallist á að uppfyllt væru skilyrði 2. mgr. 40. gr. hjskl. Í málinu lá fyrir að synjað hafði verið kröfu K um opinber skipti á þeim grundvelli að hvorugur aðila ætti eignir umfram skuldir. Landsréttur tók fram að úrskurðurinn hefði fullt sönnunargildi um þau atvik sem þar hefðu legið til grundvallar þar til hið gagnstæða hefði verið sannað. Að mati dómsins kom ekkert fram í málinu um eignastöðu aðila sem hrinti fyrrgreindri niðurstöðu. Voru skilyrði 2. málsl. 1. mgr. 44. gr. hjskl. því talin uppfyllt í málinu enda taldi Landsréttur það fara í bága við þau sjónarmið sem búa að baki 40. gr. laganna að maka sé ókleift að krefjast lögskilnaðar samkvæmt því ákvæði ef eignaleysi hefur verið staðfest með dómi og makinn kemur af þeim sökum ekki fram kröfu um opinber skipti.

Í L 730/2019 var talið að af L 513/2018 mætti ráða að hafi verið staðfest með dómi að hjón séu eignalaus, og maki komi af þeim sökum ekki fram kröfu um opinber skipti samkvæmt lögum nr. 20/1991, fullnægi sá dómur kröfum 2. málsl. 1. mgr. 44. gr. hjskl og komi í stað yfirlýsingar hjóna um eignaleysi samkvæmt 95. gr. laganna.

Með það að markmiði að einfalda og auðvelda skilnaðarferli er í frumvarpsdrögunum lagt til að sýslurmaður geti, að kröfu annars hjóna, úrskurðað um að skipti verði ekki knúin fram, sbr. 91. gr. í drögunum. Gert er ráð fyrir að sýslumaður gæti þess að kröfunni fylgi nauðsynleg gögn og skýringar til þess að unnt sé að sannreyna að skipti verði ekki knúin fram. Þá synji sýslumaður kröfunni ef hann telur yfirlýsingar og framlögð gögn ófullnægjandi eða bera með sér að eignir sem komi til álita við skiptin séu til staðar eða að eignir kunni að vera vantaldar.[29]

Í þriðja lagi er vert að geta 90. gr. í frumvarpsdrögunum um ógildi fjárskiptasamninga. Ákvæðið er mun skýrara en 2. mgr. 95. gr. hjskl., afnuminn er málshöfðunarfrestur, tiltekin atriði sem líta ber til og tekið af skarið um að beita megi ógildingarreglum samningalaga eftir því sem við á.[30]

Í 3. tölul. 1. mgr. 35. gr. í frumvarpsdrögunum eru gerðar sambærilegar kröfur um málefni barna og í 1. málsl. 1. mgr, sbr. 2. mgr. 44. gr. hjskl., þ.e. að fyrirliggi staðfestur samningur um forsjá, lögheimili barns eða búsetu barns eða staðfesting á að dómsmál hafi verið höfðað um forsjá og/eða lögheimili samkvæmt ákvæðum barnalaga. Eins og áður var vikið að var sifjalaganefnd falið að meta þörf á endurskoðun barnalaga en tillögur til breytinga hafa ekki verið birtar. Full ástæða er til að skoða málsmeðferð umræddra mála, t.d. fyrirkomulag sáttameðferðar og sáttavottorða.[31]

3.2.3 Skilnaðarferli

Samkvæmt 42. gr. hjskl. er hjónum gert skylt að leita sátta áður en gefið er út leyfi til skilnaðar og er markmiðið að kanna grundvöll að áframhaldandi hjúskap. Með lögum nr. 71/2022 var lögfest það nýmæli að ekki þurfi að leita sátta ef krafist er lögskilnaðar á grundvelli nýs a-liðar 2. mgr. 40. gr., hjskl., þ.e. þegar maki hefur gengist við ofbeldisbroti eða hlotið dóm fyrir það. Sáttaumleitanir með ofangreindu markmiði eiga ekki vel við þar sem heimilisofbeldi er til staðar og ljóst að sú breyting sem gerð var með lögum nr. 71/2022 kemur ekki að öllu leyti í veg fyrir skyldu til sáttaumleitana þegar fyrir hendi eru ásakanir um heimilisofbeldi.

Í frumvarpsdrögunum er lagt til að fella niður ákvæði 42. gr. Um leið er bent á brýna þörf fyrir aukið framboð á fræðslu um fjölskyldumál og fjölskylduráðgjöf og talið æskilegt að hjón eftir atvikum nýti sér slíka möguleika áður en áformum um skilnað er hrint í framkvæmd. Þá er bent á skyldu til sáttameðferðar samkvæmt ákvæðum barnalaga.[32]

Almennt er talið farsælast að hjón komist að samkomulagi um skilnaðarkjör og mikilvægt að aðstoða hjón við að leysa þau atriði sem leiða þarf til lykta. Í frumvarpsdrögunum er lagt til að lögfesta ákvæði í 33. gr. um skyldu sýslumanns til að leiðbeina hjónum um skilnaðarkjör. Fram kemur að hlutverk sýslumanns verði fyrst og fremst að leiðbeina hjónum um þau ákvæði laga sem áhrif hafa á skilnaðarkjör, svo sem ákvæði um framfærsluskyldu, um helmingaskipti og framkvæmd þeirra, aðrar reglur sem koma til álita við skiptin og ákvæði barnalaga eftir því sem við á. Þá geti sýslumaður veitt almennar leiðbeiningar um farveg einstakra ágreiningsmála.[33]

Í 32. gr. frumvarpsdraganna er að finna það mikilvæga nýmæli að sýslumaður veiti alfarið leyfi til skilnaðar. Samkvæmt núgildandi lögum veitir sýslumaður einungis leyfi við tilteknar aðstæður en ella þarf maki að höfða mál fyrir dómstólum. Færa má rök fyrir því að dómstólaleiðin sé tryggari ef hjón deila um matskennd skilnaðarskilyrði. Á móti kemur að í vissum tilvikum á maki samkvæmt gildandi lögum skilyrðislausan rétt til skilnaðar og dómstólaleiðin er oftast tímafrekari og kostnaðarsamari en stjórnvaldsleiðin. Tillagan í frumvarpsdrögunum um að sýslumaður veiti leyfi til skilnaðar stendur í beinu samhengi við tillögur um að mæla fyrir um óskilyrtan rétt annars hjóna til skilnaðar. Um leið er lagt til að styrkja ákvæði um kröfur og tilkynningar um meðferð mála hjá sýslumanni, sbr. 105. gr. í frumvarpsdrögunum.

4. Niðurstöður

Meginhvatinn að endurskoðun hjúskaparlaga var að bæta vernd þolenda heimilisofbeldis, m.a. að auðvelda þolendum að fá skilnað. Ljóst er að sifjalaganefnd taldi þörf á heildarendurskoðun laganna, frumvarpsdrögin fela í sér fjölda nýmæla en óhætt er að fullyrða að meginmarkmiðið hafi verið að gera réttarstöðu hjóna skýrari og réttlátari.

Hér hefur verið leitast við að greina hvaða ákvæði í drögum að frumvarpi til nýrra hjúskaparlaga megi telja helst til þess fallin að bæta réttarstöðu þolenda ofbeldis. Við blasir að í frumvarpsdrögunum er valin sú leið að mæla fyrir um úrræði sem nýtast öllum hjónum frekar en úrræði sem miða eingöngu að málum þar sem uppi eru ásakanir um ofbeldi. Bera þar hæst tillögur um óskilyrtan rétt annars hjóna til að krefjast lögskilnaðar, framfærsluskyldu eftir lögskilnað, brottfall 42. gr. hjskl. og skyldu sýslumanns til að gefa út skilnaðarleyfi. Með þessu er í raun komið til móts við flestar ábendingar sem fram hafa komið við innleiðingu Istanbúl-samningsins sem snerta ákvæði hjúskaparlaga. Auk ákvæða sem helst tengjast bættri réttarstöðu þolenda ofbeldis má einnig nefna önnur almenn atriði sem bæta stöðu maka við skilnað, t.d. skýrari ákvæði um saminga milli hjóna, um stöðu bóta og lífeyrisréttinda við fjárskipti og um endurgjaldskröfur.

Sú leið sem er valin í frumvarpsdrögunum styðst við undirstöðusjónarmið hjúskaparlaga, m.a. um að vernda almennt þann sem stendur lakar að vígi. Samskipti hjóna litast af persónulegum, félagslegum og fjárhagslegum þáttum þar sem reynt getur m.a. á samspil mismunandi tegunda ofbeldis og skort á virðingu, skilningi, samstöðu og samkennd. Með almennum ákvæðum sem hafa vernd og sanngirni að leiðarljósi má sneiða hjá áskorunum sem felast í að skilgreina ofbeldi, áhrif þess og sönnunarkröfur í einstaka tilvikum. Þess má geta að sifjalaganefnd telur æskilegt að huga vandlega að uppbyggingu nýrrar stofnunar sem hefði það að markmiði að tryggja eftir því sem unnt er skýra, samþætta og þverfaglega meðferð fjölskyldumála, m.a. með hagsmuni barns í fyrirrúmi.[34]

Að lokum verður að nefna að ákvæði hjúskaparlaga eru bara einn liður í því að styðja þolendur kynbundins ofbeldis í tengslum við skilnað. Hér getur t.d. reynt á vernd þolenda í tengslum við rannsókn og málsmeðferð sakamála og lög nr. 85/2911 um nálgunarbann og brottvísun af heimili, m.a. rafrænt eftirlit sbr. breytingarlög nr. 43/2026. Þá má benda á þörf fyrir öruggt athvarf og margvíslega ráðgjöf og stuðning.

Heimildaskrá

Alþingistíðindi.

Ármann Snævarr: Hjúskapar- og sambúðarréttur. Reykjavík 2008.

Convention on Preventing and Combating Violence Against Women and Domestic Violence, CETS No. 210; Stjórnartíðindi C-deild nr. 22/2021.

Drög að frumvarpi sifjalaganefndar til nýrra hjúskaparlaga. Mál nr. S-95/2026.

GREVIO Baseline Evaluation Report Iceland. GREVIO/Inf(2022)26.

Fyrirkomulag þjónustu vegna ofbeldis. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið 2023.

Hrefna Friðriksdóttir: „Er helmingaskiptaregla hjúskaparlaga úrelt?“ Úlfljótur, 3. tbl. 2015, bls. 323-343.

Hrefna Friðriksdóttir: „Tengsl afbrota og hjónaskilnaðar“. Afmælisrit Ragnheiðar Bragadóttur 70 ára. Reykjavík 2026 (væntanleg hjá Fonsjuris).

Ingrid Lund-Andersen: Familieøkonomien. Samlevendes retsforhold, ægtefellers retsforhold, retspolitik. Kaupmannahöfn 2011.

Linda Nielsen og Annette Kronborg: Skilsmisseret, (2. útgáfa). Kaupmannahöfn 2015.

Report submitted by Iceland pursuant to Article 68, paragraph 1 of the Council of Europe Convention on preventing and combating violence against women and domestic violence. GREVIO/Inf(2021)9.

Dómaskrá

Dómar Hæstaréttar Íslands

H 261/2005

H 619/2017

H 765/2017

Dómar Landsréttar

L 513/2018

L 730/2019

L 41/2021

L 443/2022

L 155/2023


Eftirmálsgreinar

[1] Drög að frumvarpi sifjalaganefndar til nýrra hjúskaparlaga (2026). Mál nr. S-95/2026 https://island.is/samradsgatt/mal/4242. Höfundur var formaður sifjalaganefndar.

[2] Sama heimild, bls. 41.

[3] Hér verður ekki vikið að atriðum sem tengjast stofnun hjúskapar, svo sem hjónavígsluskilyrðum og gildisskilyrðum hjúskapar, eða réttarstöðu í hjúskap.

[4] Í 12. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, er einnig fjallað berum orðum um réttinn til að ganga í hjúskap og stofna til fjölskyldu.

[5] Convention on Preventing and Combating Violence Against Women and Domestic Violence. CETS No. 210; Stjórnartíðindi C-deild nr. 22/2021.

[6] Report submitted by Iceland pursuant to Article 68, paragraph 1 of the Council of Europe Convention

on preventing and combating violence against women and domestic violence. GREVIO/Inf(2021)9.

[7] GREVIO Baseline Evaluation Report Iceland. GREVIO/Inf(2022)26.

[8] Fyrirkomulag þjónustu vegna ofbeldis (2023). Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið 2023.

[9] Frumvarp til laga um breytingu á hjúskaparlögum, nr. 31/1993, með síðari breytingum (hjónaskilnaðir), þskj. 174 – 172. mál, 152. löggjafarþing 2021–2022, bls. 6.

[10] Tillaga til þingsályktunar um hraðari málsmeðferð og bætta réttarstöðu þolenda heimilisofbeldis við hjúskaparslit, þskj. 175 – 173. mál,152. löggjafarþing 2021–2022, bls. 1-2.

[11] Nefndarálit með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á hjúskaparlögum, nr. 31/1993, með síðari breytingum (hjónaskilnaðir), þskj. 1277 – 172. mál, 152. löggjafarþing 2021–2022, bls. 2.

[12] Drög að frumvarpi sifjalaganefndar til nýrra hjúskaparlaga (2026).

[13] Sama heimild, bls. 33.

[14] Sama heimild, bls. 38-40; Ármann Snævarr: Hjúskapar- og sambúðarréttur (2008), bls. 17 og 29-31; Hrefna Friðriksdóttir: „Er helmingaskiptaregla hjúskaparlaga úrelt?“ (2015)  bls. 327 og 329.

[15] Sjá þó H 619/2017.

[16] Nefna má að í frumvarpsdrögunum er lögð áhersla á skyldu vígslumanns til að fylgja eftir gildisskilyrðum hjúskapar við hjónavígsluathöfnina, sbr. 1. mgr. 25. gr. hjskl., m.a. að gæta þess að samþykki hjónaefna sé skýrt, afdráttar- og skilmálalaust.

[17] Drög að frumvarpi sifjalaganefndar til nýrra hjúskaparlaga (2026), bls. 45.

[18] Drög að frumvarpi sifjalaganefndar til nýrra hjúskaparlaga (2026), bls. 45.

[19] Linda Nielsen og Annette Kronborg: Skilsmisseret (2015), bls. 27.

[20] Sjá nánar Hrefna Friðriksdóttir: „Tengsl afbrota og hjónaskilnaðar“ (2026). Afmælisrit Ragnheiðar Bragadóttur 70 ára. Fons juris (væntanleg 2026).

[21] Nefnt er að val á skilnaði að borði og sæng gefi hjónum kost á að stíga varlegar til jarðar, þessi leið geti einnig dregið úr áfalli fyrir þann sem ekki er sáttur við skilnaðinn og jafnvel aukið líkur á að viðkomandi samþykki skilnað og skilnaðarkjör, sjá Drög að frumvarpi sifjalaganefndar til nýrra hjúskaparlaga (2026), bls. 70.

[22] Drög að frumvarpi sifjalaganefndar til nýrra hjúskaparlaga (2026), bls. 68-69.

[23] Sama heimild, bls. 47.

[24] Sama heimild, bls. 76-77.

[25] Sama heimild, bls. 75.

[26] Sama heimild, bls. 102.

[27] Í L 41/2021 var lagt fram endurrit úr hjónaskilnaðarbók sýslumanns þar sem fram kom að hjónin hefðu náð samkomulagi um ráðstöfun þriggja bifreiða en að öðru leyti lýst yfir eignaleysi búsins. Þótti það fullnægja skilyrðum fyrir útgáfu leyfis til skilnaðar að borði og sæng.

[28] Drög að frumvarpi sifjalaganefndar til nýrra hjúskaparlaga (2026), bls. 118.

[29] Sama heimild, bls. 119.

[30] Sama heimild, bls. 118.

[31] Dómstólar hafa t.d. í allnokkrum tilvikum vísað málum frá þar sem afmörkun ágreiningsefna og efni sáttavottorða þykja ekki hafa farið saman, sjá m.a. L 443/2022 og L 155/2023. Veldur það óhjákvæmilega töfum á meðferð þessara mála.

[32] Drög að frumvarpi sifjalaganefndar til nýrra hjúskaparlaga (2026), bls. 46.

[33] Sama heimild, bls. 72-73.

[34] Sama heimild, bls. 46.

Staðgöngumæðrun milli landa – hugleiðingar um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu frá 18. maí 2021*

Eftir Hrefnu Friðriksdóttur, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands.

*Grein þessi hefur verið ritrýnd og staðist þær fræðilegu kröfur sem gerðar eru samkvæmt reglum Vefrits Úlfljóts.

Efnisyfirlit
1 Inngangur
2 Staðgöngumæðrun og réttarstaða barns
2.1 Staðgöngumæðrun á Íslandi
2.2 Staðgöngumæðrun erlendis og réttarstaða barns í kjölfarið
2.3 Fyrri niðurstöður MDE
2.4 Dómur MDE frá 18. maí 2021
2.4.1 Málavextir
2.4.2 Viðurkenning erlendrar ákvörðunar
2.4.3 Fjölskyldutengsl
2.4.4 Var um að ræða brot á friðhelgi fjölskyldu- eða einkalífs?
3 Umræður og niðurstaða
Heimildaskrá
Dómaskrá


Ágrip

Í þessari grein verður fjallað um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í málinu Valdís Fjölnisdóttir o.fl. gegn Íslandi, nr. 71552/17 frá 18. maí 2021. Í málinu var því hafnað að Ísland hefði gerst brotlegt við 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu með því að synja skráningu á foreldrastöðu barns hér á landi sem fætt var eftir staðgöngumæðrun erlendis. Vikið verður almennt að álitaefnum um staðgöngumæðrun, rýnt í dóminn og rætt um niðurstöðuna.

Abstract

This article discusses the judgement of the European Court of Human Rights in the case Valdís Fjölnisdóttir and others v. Iceland, no. 71552/17 of May 18 2021. The court held that there had been no violation of Article 8 of the European Convention for Human Rights concerning a non-recognition of a parental link. The article will provide a general framework for the case of surrogacy and then focus on and reflect on the decision of the Court.


1 Inngangur

Vaxandi umræða hefur átt sér stað í heiminum á undanförnum áratugum um staðgöngumæðrun, en með staðgöngumæðrun er átt við að staðgöngumóðir taki að sér að ganga með barn í þeim tilgangi að afhenda það væntanlegum foreldrum. Í fjölmörgum ríkjum hefur verið tekist á um hvort leyfa eigi staðgöngumæðrun og þá með hvaða skilyrðum.[1] Í ljósi þess að sum ríki leyfa staðgöngumæðrun en önnur ekki hafa einnig vaknað áleitnar spurningar um réttarstöðu fólks sem ferðast á milli landa í því skyni að nýta sér þjónustu staðgöngumóður.[2] Fram hafa komið ólík lagaleg, félagsleg, sálfræðileg, læknisfræðileg, siðfræðileg, menningarleg og pólitísk viðhorf og við virðumst langt frá því að ná samhljóm í alþjóðasamfélaginu um þetta efni.[3]

Mannréttindadómstóll Evrópu (hér eftir MDE) hefur á undanförnum árum leyst úr nokkrum álitamálum er snerta staðgöngumæðrun milli landa þar sem fyrst og fremst hefur reynt á 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu (hér eftir MSE) um friðhelgi fjölskyldu- og einkalífs og lögmæti íhlutunar af hálfu tiltekinna ríkja. Mikilvægur dómur var kveðinn upp þann 18. maí 2021 í máli Valdísar Fjölnisdóttur o.fl. gegn Íslandi.[4] Markmiðið með þessari grein er að rýna í niðurstöðu dómsins. Samhengisins vegna verður varpað örlitlu ljósi á umræðu um staðgöngumæðrun hér á landi. Þá verður vikið að fyrri dómum MDE í málum um staðgöngumæðrun og því næst bornar saman niðurstöður héraðsdóms, Hæstaréttar og Mannréttindadómstólsins í því máli sem hér er til umræðu. Að lokum verður örstutt umræða um niðurstöðu dómsins, m.a. með hliðsjón af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013 (hér eftir SRB).

2 Staðgöngumæðrun og réttarstaða barns

2.1 Staðgöngumæðrun á Íslandi

Hér á landi er staðgöngumæðrun bönnuð skv. lögum nr. 55/1996 um tæknifrjóvgun o.fl. Árið 2009 var skipaður vinnuhópur sem falið var að skoða siðfræðileg, lögfræðileg og læknisfræðileg álitaefni varðandi staðgöngumæðrun og hvort leyfa ætti staðgöngumæðrun hér á landi. Hópurinn skilaði niðurstöðu árið 2010 og taldi ekki tímabært að heimila staðgöngumæðrun að svo stöddu.[5] Í janúar 2012 var samþykkt á Alþingi þingsályktunartillaga þar sem ráðherra var falið að skipa starfshóp til að undirbúa frumvarp til laga um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni.[6] Í mars og aftur í október 2015 var lagt fram frumvarp til laga um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni en ekki náðist að afgreiða það.[7]

2.2 Staðgöngumæðrun erlendis og réttarstaða barns í kjölfarið

Samhliða umræðu um staðgöngumæðrun hér á landi hefur borið við að fólk hafi nýtt sér staðgöngumæðrun í ríkjum þar sem staðgöngumæðrun er leyfð og óskað eftir staðfestingu á foreldrastöðu eftir komu til Íslands. Hér á landi hafa slík mál tvisvar komið til kasta Hæstaréttar, síðast í dómi frá 30. mars 2017.[8] Málinu var skotið til Mannréttindadómstólsins sem kvað upp dóm sinn 18. maí 2021, eins og áður var getið.

2.3 Fyrri niðurstöður MDE

Áður en vikið er að þeim dómi MDE sem er tilefni greinarinnar er mikilvægt að geta nokkurra álitaefna er varða staðgöngumæðrun sem höfðu þegar ratað til MDE.

Í máli Mennesson og Labasse gegn Frakklandi frá 2014 reyndi á hvort franska ríkinu hefði verið heimilt að synja staðfestingu á foreldrastöðu barns sem fætt var af staðgöngumóður í Norður-Ameríku. Af hálfu undirdeildar var ekki talið að ríkið hefði brotið á rétti verðandi foreldranna skv. 8. gr. MSE. Aftur á móti var talið að ríkið hefði brotið gegn einkalífi barnsins skv. 8. gr. með því að koma í veg fyrir að barnið gæti staðfest lagaleg tengsl sín við líffræðilegan föður. [9]  Í dóminum var ekki tekin skýr afstaða til þess hvort eða með hvaða hætti ríkinu bæri að vernda tengsl barnsins við eiginkonu hins líffræðilega föður.

Í máli Paradiso og Campanelli gegn Ítalíu frá 2017 var fyrst leyst úr máli þar sem hvorugt verðandi foreldra hafði líffræðileg tengsl við barnið og var því hafnað að um brot gegn MSE hefði verið að ræða. Sérstaða þessa máls var sú að ítölsk yfirvöld höfðu tekið barnið af verðandi foreldrunum.[10]

Árið 2019 gaf yfirdeild MDE út mikilvægt leiðbeinandi álit í máli sem snerist um viðurkenningu á foreldrastöðu barns, sem fætt var eftir staðgöngumæðrun, með tilliti til eiginkonu líffræðilegs föður (sem ekki hafði líffræðileg tengsl við barnið).[11] Niðurstaðan var sú að við þessar aðstæður fæli réttur barns til einkalífs, skv. 8. gr. MSE, í sér kröfu um að unnt væri að stofna til lagalegra tengsla við viðkomandi maka með einhverjum leiðum. Ríki væri ekki skylt að skrá eiginkonu líffræðilegs föður sem móður í þjóðskrá á grundvelli erlendra gagna heldur mætti nota aðrar leiðir, svo sem ættleiðingu. Síðar sama ár neitaði dómstóllinn að taka fyrir mál um synjun á skráningu eiginkonu án líffræðilegra tengsla og vísaði til þess möguleika að stofna til lagalegra tengsla með ættleiðingu.[12] Árið 2020 hafnaði dómstóllinn því einnig að brotið hefði verið gegn 14. gr., sbr. 8. gr., MSE með því að synja skráningu verðandi foreldris (konu) sem lagt hafði til egg við staðgöngumæðrunina og vísaði aftur til réttaráhrifa mögulegrar ættleiðingar.[13]

Af ofangreindum málum má sjá að Mannréttindadómstóllinn hafði gert skýran greinarmun á réttarstöðu barns gagnvart verðandi foreldri eftir því hvort um líffræðileg tengsl var að ræða eða ekki. Ekki lá fyrir dómur sem tók á því hversu langt þyrfti að ganga til að vernda réttarstöðu barns gagnvart foreldri sem ekki hefði líffræðileg tengsl við barnið.

2.4 Dómur MDE frá 18. maí 2021

2.4.1 Málavextir

Helstu málavextir voru eftirfarandi. Tvær konur, A og B, sem voru í hjúskap, greiddu fyrir þjónustu staðgöngumóður í Kaliforníu í Bandaríkjum Norður-Ameríku. Barnið fæddist í febrúar 2013. Hvorki A né B höfðu líffræðileg tengsl við barnið þar sem notaðar voru gjafakynfrumur. Eftir fæðingu barnsins urðu A og B foreldrar barnsins skv. dómsúrskurði yfirréttar í Kaliforníu og gefið var út fæðingarvottorð og vegabréf í nafni barnsins. Um leið var staðfest að staðgöngumóðir hefði hvorki erfðafræðileg né lagaleg tengsl við barnið og hið sama gilti um ónafngreinda kynfrumugjafa.

Fljótlega eftir komu til Íslands með barnið leituðu A og B til Þjóðskrár Íslands og óskuðu eftir skráningu barnsins í þjóðskrá. Í júní 2013 var beiðni um skráningu barnsins í þjóðskrá hafnað. Í kjölfar synjunarinnar var litið svo á að barnið væri statt á Íslandi án forsjáraðila. Tók því barnaverndarnefnd forsjá barnsins í sínar hendur en ákvað að vista barnið hjá A og B á grundvelli barnaverndarlaga nr. 80/2002. Eftir að þær fengu leyfi sem fósturforeldrar var gerður við þær fóstursamningur. Jafnframt fékk barnið dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli ákvæða útlendingalaga nr. 80/2016. Ákvörðun Þjóðskrár Íslands var kærð til þáverandi innanríkisráðuneytis sem staðfesti ákvörðunina í mars 2014. A og B sóttu um leyfi til að ættleiða barnið en drógu umsókn sína til baka þegar þær slitu hjúskap sínum árið 2015. Var þá gerður fóstursamningur við B og nýjan maka hennar en jafnframt ákveðið að barnið hefði jafna umgengni við A og B. Sama ár öðlaðist barnið íslenskt ríkisfang á grundvelli laga. A og B, ásamt lögráðamanni barnsins, höfðuðu mál fyrir héraðsdómi í júní 2015. Gerð var krafa um að ógiltur yrði úrskurður ráðuneytisins og viðurkennd skylda Þjóðskrár Íslands til þess að skrá A og B sem foreldra barnsins í samræmi við erlent fæðingarvottorð. Stefndu voru sýknuð með dómi héraðsdóms 2. mars 2016 og var sá dómur staðfestur í Hæstarétti þann 30. mars 2017 í máli nr. 367/2016. Málinu var skotið til MDE í september 2017 og var dómur kveðinn upp í undirdeild þann 18. maí 2021.[14]

2.4.2 Viðurkenning erlendrar ákvörðunar

Í málinu var lögð til grundvallar sú almenna regla alþjóðlegs einkamálaréttar að yfirvöldum ríkis beri almennt ekki skylda til að viðurkenna gildi ákvörðunar yfirvalda í öðru ríki um persónulega réttarstöðu manna ef viðkomandi ákvörðun er talin ganga í berhögg við grunnreglur fyrrnefnda ríkisins.[15] Hér reyndi á hvort erlend ákvörðun um foreldrastöðu eftir staðgöngumæðrun væri samrýmanleg íslensku réttarskipulagi. Í héraðsdómi og Hæstarétti var lögð áhersla á að ákvörðunin gengi gegn ákvæðum íslenskra barnalaga nr. 76/2003 um móðerni, nánar tiltekið að móðir væri sú kona sem fæddi barn, og fortakslausu banni við staðgöngumæðrun í 4. mgr. 5. gr. laga nr. 55/1996 um tæknifrjóvgun o.fl. Í dómi MDE var ekki dregið í efa að þetta væri réttarstaðan á Íslandi.

2.4.3 Fjölskyldutengsl

Í málinu var tekist á um hvort myndast hefðu fjölskyldutengsl sem nytu verndar mannréttindaákvæða. Í dómi héraðsdóms var lögð áhersla á að A og B hefðu tekist á hendur foreldraskyldur gagnvart barninu við fæðingu, annast barnið og  þannig í raun gegnt öllum umönnunarskyldum gagnvart því. Féllst héraðsdómur á að með barninu og A og B hefðu myndast fjölskyldutengsl sem nytu verndar 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944, sbr. stjórnskipunarlög nr. 97/1995 (hér eftir stjskr.) og 1. mgr. 8. gr. MSE.

Í dómi Hæstaréttar var viðurkennt að með hugtakinu fjölskylda í 71. gr. stjskr. væri átt við fjölskyldutengsl í víðtækum skilningi. Hæstaréttur taldi þó að 71. gr. veitti vernd þeim fjölskyldutengslum einum sem stofnast hefðu á lögmætan hátt skv. íslenskum lögum. Í þessu tiltekna máli hefðu fjölskyldutengsl því ekki myndast fyrr en barnaverndarnefnd samþykkti að barnið yrði vistað í fóstri hjá A og B. Hæstiréttur áréttaði að fram að því hefðu fjölskyldutengsl ekki skapast að íslenskum lögum þar sem hvorki A né B hefðu gengið með eða alið barnið og þá hefði ekki verið um að ræða líffræðileg tengsl þeirra við barnið. Til stuðnings vísaði Hæstiréttur í dóm MDE í málinu Paradiso og Campanelli gegn Ítalíu.[16] Að mati Hæstaréttar varðaði ákvörðun um að synja skráningu á fjölskyldustöðu ekki þau fjölskyldutengsl sem stofnuðust síðar og var ákvörðunin því ekki talin brot á 71. gr. stjskr.

Í dómi Mannréttindadómstólsins kemur fram að mat á tilvist fjölskyldulífs snúist um að meta náin persónuleg tengsl í mismunandi samböndum fólks, ekki einungis lagaleg tengsl heldur einnig raunveruleg tengsl með ákveðna eiginleika. Lögð var áhersla á að 8. gr. MSE verndi ekki rétt til að stofna fjölskyldu. Löngun fólks til að stofna til fjölskyldutengsla njóti því ekki verndar ákvæðsins heldur verði fjölskylda eða fjölskyldutengsl að vera til staðar. Mannréttindadómstóllinn taldi nauðsynlegt að leggja mat á tengsl á tímanum frá fæðingu barnsins og fram til þess tíma er Hæstiréttur kvað upp dóm sinn árið 2017. Við það mat var í fyrsta lagi áréttað að A og B hefðu engin líffræðileg tengsl við barnið og að því leyti væri málið sambærilegt við Paradiso og Campanelli. Málin ættu það einnig sameiginlegt að lagaleg tengsl hefðu verið óljós frá upphafi með hliðsjón af reglum íslenskra laga um móðerni og banni við staðgöngumæðrun. Þrátt fyrir þetta taldi dómstóllinn að leggja yrði mat á raunveruleg tengsl, þ.e. eðli eða gæði tengslanna, hlutverk A og B gagnvart barninu og þann tíma sem barnið bjó hjá þeim. Mannréttindadómstóllinn lagði áherslu á að ólíkt því sem gerðist á Ítalíu þá hefðu íslensk yfirvöld ekki tekið ákvörðun um að rjúfa tengsl A, B og barnsins. Þvert á móti hefði barninu verið ráðstafað í fóstur til A og B.[17] Í ljósi þess að barnið hefði verið, við uppkvaðningu dóms Hæstaréttar, í órjúfa nánum tilfinningatengslum við A og B allt sitt líf, nánar tiltekið í fjögur ár, taldi dómstóllinn uppfyllt skilyrði 8. gr. MSE um tilvist fjölskyldutengsla.

2.3.4 Var um að ræða brot á friðhelgi fjölskyldu- eða einkalífs?

Athyglisvert er að skoða mismunandi nálgun á hinum ólíku dómstigum. Eins og fyrr var getið taldi héraðsdómur að stofnast hefði til fjölskyldulífs. Héraðsdómur nálgaðist þó málið fyrst og fremst út frá rétti barnsins. Taldi héraðsdómur að synjun Þjóðskrár hefði falið í sér íhlutun í friðhelgi einka- og fjölskyldulífs barnsins en komst svo að þeirri niðurstöðu að sú íhlutun hefði fullnægt áskilnaði 3. mgr. 71. gr. stjskr. og 2. mgr. 8. gr. MSE.

Þar sem Hæstiréttur taldi ekki hafa stofnast til fjölskyldulífs milli A, B og barnsins á þeim tíma sem Þjóðskrá tók ákvörðun varð niðurstaðan sú að ekki hefði verið brotið á rétti þeirra samkvæmt 71. gr. stjskr. Hæstiréttur tók á hinn bóginn ekki afstöðu til þess hvort brotið hefði verið á rétti barnsins til einkalífs.[18]

Eins og áður sagði var það niðurstaða Mannréttindadómstólsins að stofnast hefði til fjölskyldulífs milli aðilanna og mat dómstóllinn í kjölfarið fyrst og fremst hvort synjun á skráningu á foreldrastöðu hefði uppfyllt skilyrði 8. gr. MSE um takmörkun á rétti til fjölskyldulífs. Dómstóllinn taldi ekki þörf á að meta málið sérstaklega út frá rétti til einkalífs enda hefðu samskonar rök legið að baki.[19] Við mat á því hvort íhlutun í friðhelgi fjölskyldulífs uppfyllti skilyrði 2. mgr. 8. gr. MSE fór dómstóllinn í gegnum skilyrði ákvæðisins. Í fyrsta lagi var niðurstaðan sú að synjunin ætti sér stoð í lögum, sbr. túlkun ákvæða íslenskra laga um móðerni og bann við staðgöngumæðrun. Í öðru lagi taldi dómstóllinn að stefnt hefði verið að því lögmæta markmiði að vernda réttindi annarra í ljósi röksemda sem færðar hafa verið fram um vernd kvenna og barna við staðgöngumæðrun.[20] Í þriðja lagi var lagt mat á nauðsyn íhlutunar. Dómstóllinn lagði áherslu á að það væri ekki hlutverk hans að mæla fyrir um hvaða afstöðu aðildarríkjum bæri að taka til staðgöngumæðrunar almennt enda reyndi hér á flókin og viðkvæm álitaefni. Í málum þar sem reyndi á viðkvæm siðferðileg álitaefni og þar sem ekki væri samhljómur milli aðildarríkja um vægi eða vernd hagsmuna yrði að viðurkenna rúmt svigrúm ríkja til mats á nauðsyn íhlutunar. Sérstaklega ætti það við þegar finna yrði jafnvægi milli einstaklingsbundinna hagsmuna og almannahagsmuna. Við túlkun þessara sjónarmiða í umræddu máli lagði dómstóllinn áherslu á að Ísland hefði ekki rofið fjölskyldutengsl A, B og barnsins. Með ráðstöfun barnsins í fóstur og ákvörðun um umgengni hefði ríkið stuðlað að því að aðilar hefðu áfram virk fjölskyldutengsl þrátt fyrir að A og B yrðu ekki lagalega skráðar sem foreldrar barnsins. Þá hefði ættleiðing væntanlega staðið A og B til boða þar til skilnaður átti sér stað.[21] Fallist var á að þessi staða hefði haft einhver áhrif á fjölskyldulíf þeirra en talið að sú vernd sem fólst í varanlegu fóstri hefði verið til þess fallin að draga verulega úr óvissu og tilfinningalegu álagi á aðila. Þá lagði dómstóllinn áherslu á að Alþingi hefði veitt barninu ríkisborgararétt með lögum sem hefði tryggt réttarstöðu barnsins hér á landi. Synjun á skráningu á foreldrastöðu hefði því haft takmörkuð áhrif í þá veru að hindra aðila í að njóta virkra og raunverulegra fjölskyldutengsla.[22] Með hliðsjón af ofangreindu var það niðurstaða dómstólsins að ekki hefði verið um að ræða brot gegn 8. gr. MSE.[23]

3 Umræður og niðurstaða

Í umræddum dómi MDE felast mikilvægar leiðbeiningar um hvernig stofnast getur til fjölskyldulífs við þær aðstæður sem hér voru uppi. Mannréttindadómstóllinn hefur oft áður staðfest að formleg, eða lagaleg, staða ráði ekki úrslitum við mat á tilvist fjölskyldulífs heldur verði að líta til eðlis og inntaks raunverulegra tengsla.[24] Verður að telja niðurstöðu Mannréttindadómstólsins að þessu leyti betur rökstudda en þá leið sem Hæstiréttur valdi.

Þegar kemur að mati á íhlutun, eða skerðingu á friðhelgi, skv. 2. mgr. 8. gr. MSE, kemur nokkuð á óvart að Mannréttindadómstóllinn hafi nálgast málið fyrst og fremst út frá rétti aðilanna til fjölskyldulífs en ekki greint sérstaklega rétt barnsins til einkalífs.[25] Umræða um foreldrastöðu út frá friðhelgi einkalífs barnsins hefði undirstrikað mikilvægi þess að skoða mál frá sjónarhorni barns og að greina betur áhrif meginreglunnar um að niðurstaða ráðist af hagsmunum barns.[26]

Í ljósi þess hve staðgöngumæðrun er umdeild var þess að vænta að Mannréttindadómstóllinn viðurkenndi nokkuð rúmt svigrúm aðildarríkja til mats á réttaráhrifum staðgöngumæðrunar yfir landamæri.[27] Jafnframt er ljóst af fordæmum að ákvæði 8. gr. MSE leggur jákvæðar skyldur á aðildarríki um að grípa til aðgerða til þess að tryggja að réttindi verði virk í reynd, sérstaklega mikilvæg réttindi barns.[28] Við mat á íhlutun verður að líta til þess að við staðgöngumæðrun leikast á margvíslegir ólíkir hagsmunir sem vega þarf og meta með heildstæðum hætti. Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna hefur t.d. viðurkennt að við beitingu 1. mgr. 3. gr. SRB, um það sem barni er fyrir bestu, sé oft um að ræða samspil ríkra almannahagsmuna og hagsmuna einstaks barns þar sem finna verði ásættanlega málamiðlun. Að lágmarki er gerð krafa um að ríki greini hagsmuni barnsins og að hagsmunamat fari fram.[29]

Lykilatriði hér var að fá svar um hvort þær ráðstafanir sem íslensk stjórnvöld gripu til í því skyni að standa vörð um hagsmuni barnsins yrðu metnar fullnægjandi í þessu samhengi. Í dómi Mannréttindadómstólsins er fallist á að með markvissum aðgerðum, sem tryggðu stöðu barnsins hér á landi og virk raunveruleg tengsl barnsins við A og B, hafi Ísland fundið lögmætt jafnvægi þeirra hagsmuna sem tekist var á um.

Það má halda því fram að ákvörðun barnaverndaryfirvalda um að grípa inn í mál barnsins og aðgerðir í kjölfarið hafi verið til fyrirmyndar í málum af þessu tagi. Með hliðsjón af valdsviði og hlutverki barnaverndarnefnda skapist með þessu fullnægjandi grundvöllur til að tryggja grunnréttindi viðkomandi barns.[30] Í framtíðinni verður áhugavert að sjá hvort og með hvaða hætti reynt geti á ættleiðingu í kjölfar staðgöngumæðrunar, m.a. hvernig ákvæði gildandi laga falla að réttarstöðu barns sem verður til við staðgöngumæðrun milli landa.[31] Að lokum verður að geta þess að ríki heims hafa almennt verið hvött til að setja skýrari lagaramma um staðgöngumæðrun og auka alþjóðlegt samstarf á þessu sviði.[32]


Heimildaskrá

Alþingistíðindi.

Advisory Opinion concerning the recognition in domestic law of a legal parent-child relationship between a child born through a gestational surrogacy arrangement abroad and the intended mother, P16-2018-001 frá 10. apríl 2019.

Áfangaskýrsla vinnuhóps heilbrigðisráðherra um staðgöngumæðrun (2010), https://www.stjornarradid.is/media/velferdarraduneyti-media/media/skyrslur/afangaskyrsla-vinnuhops-um-stadgongumaedrun.pdf (skoðað 9. júní 2021).

Björg Thorarensen: „Friðhelgi einkalífs og fjölskyldu og réttur til að stofna til hjúskapar“. Mannréttindasáttmáli Evrópu: Meginreglur, framkvæmd og áhrif á íslenskan rétt. Ritstj. Björg Thorarensen, Codex o.fl. 2017, bls. 281-334.

Claire Fenton-Glynn og Jens M. Scherpe: „Surrogacy in a Globalised World: Comparative Analysis and Thoughts on Regulation“. Eastern and Western Perspectives on Surrogacy. Ritstj. Jens M Scherpe, Claire Fenton-Glynn og Terry Kaan, Intersentia 2019, bls. 515-592.

Davíð Þór Björgvinsson: „Réttaráhrif erlendra úrlausna á sviði sifjaréttar“. Úlfljótur, 2. tbl. 1993, bls. 117-132.

General Comment No. 14 (2013) on the right of the child to have his or her best interests taken as a primary consideration (art. 3, para. 1). CRC/C/GC/14.

Hrefna Friðriksdóttir: Ættleiðingar á Íslandi. Innanríkisráðuneytið 2011.

Hrefna Friðriksdóttir: „Iceland“. Eastern and Western Perspectives on Surrogacy. Ritstj. Jens M Scherpe, Claire Fenton-Glynn og Terry Kaan, Intersentia 2019, bls. 259-277.

Jens M. Scherpe og Claire Fenton-Glynn: „Eastern and Western Perspectives on Surrogacy: An Introduction“. Eastern and Western Perspectives on Surrogacy. Ritstj. Jens M Scherpe, Claire Fenton-Glynn og Terry Kaan, Intersentia 2019, bls. 1-6.

Olika väger till föräldraskap. SOU 2016:11.

Sigurður Kristinsson: „Legalizing altruistic surrogacy in response to evasive travel? An Icelandic proposal“ Reproductive BioMedicine and Society Online, 3 tbl. 2016, bls. 109-119.

The Report of the Special Rapporteur on the sale and sexual exploitation of children, including child prostitution, child pornography and other child sexual abuse material, 15. janúar 2018. A/HRC/37/60.

Dómaskrá

H 661/2015
H 367/2016

Dómur MDE 13. júní 1979 í máli nr. 6833/74 (Marckx gegn Belgíu)
Dómur MDE 22. apríl 1997 í máli nr. 21830/93 (X, Y og Z gegn Bretlandi)
Dómur MDE 3. nóvember 2011 í máli nr. 57813/00 (S.H. o.fl. gegn Austurríki)
Dómur MDE 26. júní 2014 í málum nr. 65192/11 og 65941/11 (Mennesson og Labasse g. Frakklandi)
Dómur MDE 21. júlí 2016 í málum nr. 9063/14 og 10410/14 (Foulon og Bouvet g. Frakklandi)
Dómur MDE 24. janúar 2017 í máli nr. 25358/12 (Paradiso og Campanelli g. Ítalíu)
Dómur MDE 16. júlí 2020 í máli nr. 11288/18 (D. gegn Frakklandi)
Dómur MDE 18. maí 2021 í máli nr. 71552/17 (Valdís Fjölnisdóttir o.fl. g. Íslandi)
Dómur MDE 8. apríl 2021 í málum nr. 47621/13 o.fl. (Vavricka o.fl. gegn Tékklandi)

Ákvörðun Mannréttindanefndar Evrópuráðsins 18. nóvember 2019 í máli nr. 1462/18 og 17348/18 (C og E g. Frakklandi)


Eftirmálsgreinar

[1] Meðal þeirra álitamála sem reynir á er hvort gera eigi greinarmun á staðgöngumæðrun í hagnaðar- eða velgjörðarskyni og greinarmun eftir því hvaða kynfrumur eru notaðar, þ.e. hvort staðgöngumóðir leggur til egg og/eða hvort verðandi foreldrar leggja til kynfrumur eða ekki, sjá m.a. Áfangaskýrsla vinnuhóps heilbrigðisráðherra um staðgöngumæðrun (2010), https://www.stjornarradid.is/media/velferdarraduneyti-media/media/skyrslur/afangaskyrsla-vinnuhops-um-stadgongumaedrun.pdf

[2] Sjá t.d. Jens M. Scherpe og Claire Fenton-Glynn: „Eastern and Western Perspectives on Surrogacy: An Introduction“ (2019), bls. 2.

[3] Claire Fenton-Glynn og Jens M. Scherpe: „Surrogacy in a Globalised World: Comparative Analysis and Thoughts on Regulation“ (2019), bls. 517.

[4] Dómur MDE 18. maí 2021 í máli nr. 71552/17 (Valdís Fjölnisdóttir o.fl. g. Íslandi). Þess ber að geta að skv. 43. gr. MSE má óska eftir að vísa máli til yfirdeildar innan þriggja mánaða frá dagsetningu dóms.

[5] Frumvarp til laga um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni, þskj. 245 – 229. mál, 145. löggjafarþing, bls. 19.

[6] Þingsályktun um staðgöngumæðrun, þskj. 702 – 4. mál, 140. löggjafarþing.

[7] Frumvarp til laga um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni, þskj. 1141 – 671. mál, 144. löggjafarþing og þskj. 245 – 229. mál, 145. löggjafarþing. Sjá einnig Hrefna Friðriksdóttir: „Iceland“ (2019), bls. 262-264.

[8] H 367/2016. Fyrra málinu sem hér var vikið að var vísað frá Hæstarétti, sbr. H 661/2015. Héraðsdómur hafði fellt úr gildi synjun Þjóðskrár Íslands um skráningu konu í þjóðskrá sem móður barns eftir staðgöngumæðrun erlendis. Málinu var vísað frá þar sem Þjóðskrá framkvæmdi skráninguna í kjölfar héraðsdómsins.

[9] Dómur MDE 26. júní 2014 í málum nr. 65192/11 og 65941/11 (Mennesson og Labasse g. Frakklandi). Í þessum tilvikum hafði verðandi faðir lagt til sæði við staðgöngumæðrunina. Sjá einnig t.d. dóm MDE 21. júlí 2016 í málum nr. 9063/14 og 10410/14 (Foulon og Bouvet g. Frakklandi) en þar var um að ræða einhleypa samkynhneigða menn sem höfðu líffræðileg tengsl við börnin.

[10] Dómur MDE 24. janúar 2017 í máli nr. 25358/12 (Paradiso og Campanelli g. Ítalíu). Nánar verður vikið að málinu síðar.

[11] Advisory Opinion concerning the recognition in domestic law of a legal parent-child relationship between a child born through a gestational surrogacy arrangement abroad and the intended mother, P16-2018-001 frá 10. apríl 2019.

[12] Ákvörðun Mannréttindanefndar Evrópuráðsins 18. nóvember 2019 í máli nr. 1462/18 og 17348/18 (C og E g. Frakklandi).

[13] Dómur MDE 16. júlí 2020 í máli nr. 11288/18 (D. gegn Frakklandi). Í málinu var m.a. reynt að halda því fram að hið sama ætti að gilda um verðandi foreldra sem legðu til erfðaefni óháð því hvort viðkomandi væri karlkyns eða kvenkyns. Málinu var vísað frá.

[14] Sjá kafla 1.

[15] Sjá t.d. Davíð Þór Björgvinsson: „Réttaráhrif erlendra úrlausna á sviði sifjaréttar“ (1993), bls. 120.

[16] Sjá kafla 2.3. Í þessi máli var það ekki talið brot gegn 8. gr. MSE að taka barn, sem fæddist fyrir tilstilli staðgöngumæðrunar utan Ítalíu,  af væntanlegum foreldrum og heimila öðrum að ættleiða barnið. Fjölskyldutengsl í skilningi ákvæðisins voru ekki talin hafa myndast, fyrst og fremst þar sem væntanlegir foreldrar höfðu engin líffræðileg tengsl við barnið og þau höfðu einungis annast barnið í stuttan tíma sem hafði einkennst af vafa um lagalega stöðu barnsins.

[17] Tekið var fram hvernig fóstursamningum var breytt eftir að A og B slitu hjúskap sínum árið 2015 og hvernig umgengni við barnið var háttað.

[18] Sjá fyrri umfjöllun um Mennesson og Labasse g. Frakklandi í kafla 2.3.

[19] Einn dómari skilaði sératkvæði. Hann var sammála niðurstöðu meirihlutans en dró í efa að gerður hefði verið nægur greinarmunur á fjölskyldulífi verðandi foreldra annars vegar og einkalífi barnsins hins vegar.

[20] Sjá t.d. Sigurður Kristinsson: „Legalizing altruistic surrogacy in response to evasive travel?“ (2016), bls. 111. Einnig Olika väger till föräldraskap (2016), bls 58-59.

[21] Tekið var fram að A og B hefðu dregið umsókn um ættleiðingu til baka og því lægi ekki fyrir niðurstaða dómstóla um hvort ættleiðing hefði verið fær í þessu tilviki. Þá var einnig tekið mið af því að annað hvort A eða B gætu hugsanlega sótt um að ættleiða barnið með nýjum maka án þess þó að meta hvaða áhrif það myndi hafa fyrir þann sem ekki stæði að ættleiðingunni.

[22] Staðan var að þessu leyti ólík því sem átti við í Mennesson og Labasse málinu þar sem franska ríkið synjaði um skráningu á foreldrastöðu en greip ekki til neinna úrræða til að tryggja réttarstöðu barnsins í Frakklandi.

[23] Aðilar reyndu að halda því fram að jafnræðisregla hefði verið brotin í ljósi efnislegrar niðurstöðu í H 661/2015. Dómstóllinn hafnaði því að um hefði verið að ræða brot gegn jafnræðisreglu 14. gr., sbr. 8. gr.

[24] Sjá t.d. dóm MDE 13. júní 1979 í máli nr. 6833/74 (Marckx gegn Belgíu) og dóm MDE 22. apríl 1997 í máli nr. 21830/93 (X, Y og Z gegn Bretlandi).

[25] Í Mennesson og Labasse var talið að ríki hefði takmarkaðra svigrúm þegar kæmi að rétti barns til friðhelgi einkalífs þar sem foreldrastaða væri nátengd einkalífi, m.a. rétti til auðkennis, og þá yrði að taka tillit til þess sem barninu væri fyrir bestu.

[26] Sjá t.d. General Comment No. 14 (2013), bls. 4, um 1. mgr. 3. gr. barnasamningsins sem málsmeðferðarreglu. Hér er þó ekki gert ráð fyrir að efnisleg niðurstaða hefði orðið önnur þótt þessari nálgun hefði verið beitt.

[27] Dómstóllinn hefur fjallað um þau sjónarmið sem gilda um svigrúm aðildarríkja með sambærilegum hætti í fjölmörgum málum, sjá t.d. dóm MDE 3. nóvember 2011 í máli nr. 57813/00 (S.H. o.fl. gegn Austurríki) og dóm MDE 8. apríl 2001 í málum nr. 47621/13 o.fl. (Vavricka o.fl. gegn Tékklandi).

[28] Sjá kafla 2.3. Einnig Björg Thorarensen: „Friðhelgi einkalífs og fjölskyldu og réttur til að stofna til hjúskapar“ (2017), bls. 282.

[29] General Comment No. 14 (2013) bls. 10. Þess má geta að hér er um vandasamt álitaefni að ræða sem ekki er svigrúm til að greina frekar. Í tilviki staðgöngumæðrunar sjá t.d. Olika väger till föräldraskap, bls. 63-64.

[30] Þá má geta þess að verðandi foreldrar geta einnig gripið til frekari ráðstafana, svo sem með gerð erfðaskrár.

[31] Eins og áður sagði virðist MDE ganga út frá því að ættleiðing standi til boða, að öðrum skilyrðum uppfylltum, sjá einnig Olika väger till föräldraskap, bls. 65. Vert er að geta þess að mælt hefur verið með breytingum á ættleiðingarlögum hér á landi, t.d. með því að leyfa stjúpættleiðingar eftir skilnað og umgengni við nákomna eftir ættleiðingu, hvort tveggja með nánari skilyrðum, sjá Hrefna Friðriksdóttir: Ættleiðingar á Íslandi (2011), bls. 147.

[32] Sjá t.d. The Report of the Special Rapporteur on the sale and sexual exploitation of children (2018), bls. 17-18.